Starfsdagur verður í skólanum fimmtudaginn 25. sept. n.k. Þann dag er Frístundaheimilið Hvergiland opið frá 8:00 til 17.15. Skólastjóri
Haustfundir
Haustfundir með foreldrum verða sem hér segir:
1. bekkur mánudaginn 15. sept. kl. 18.00-20.00. Veitingar.
6. bekkur þriðjudaginn 16. sept.
4. og 8. bekkur föstudaginn 18. sept.
5. bekkur þriðjudaginn 23. sept. kl. 8.20 í stofu 102
9. bekkur þriðjudaginn 23. sept.
3., 7. og 10. bekkur miðvikudaginn 24. sept.
Allir fundirnir eru frá kl. 8:20-9:40 nema í 1. bekk og eru í heimastofum árganga. 2.-4. bekk er kennt á sínum dögum en misjafnt er eftir árgöngum hvernig kennslu er annars háttað. Skólastjóri
Afmælisdagurinn
Öllum gestum, nemendum og starfsfólki er gladdist með okkur á afmælisdaginn er þakkað fyrir komuna og vel unnin störf.
Með kveðju, Afmælisnefnd Borgaskóla
Afmæli Borgaskóla
Dagskrá 12. september 2008
15:40-16:00 Skólahljómsveit Grafarvogs
spilar á skólalóð
16:00 Hátíðin sett á útisviði
Ávörp
Tónlistaratriði
1. og 2. bekkur
Tónlistarval
16:40 Atriði á sal skólans
3. -10. bekkur
Ljósmyndir úr
10 ára sögu skólans,
ljóð, skreytingar og mósaíklistaverk
sem nemendur hafa unnið.
Ýmis leiktæki og skemmtun verða á skólalóð og í íþróttahúsi.
Pylsusala á vegum 10. bekkjar.
Kaffiveitingar
Íþróttaskóli 6 ára barna
Íþróttaskólinn verður á þriðjudögum kl. 14:30 -16:00 og á fimmtudögum
kl. 14:30-16:00.
Öll börn í 1. bekk hjartanlega velkomin.
Skólagangan
Listaverkið Skólagangan hefur verið í vinnslu í sumar hjá listamanninn
og myndmenntakennara skólans Sigrúnu Ólafsdóttur og Önnu Þóru
Jónsdóttur. Þetta er mósaíkverk sem allir nemendur og starfsfólk
vinna saman að. Á mánudaginn röðuðu nemendur mislitum steinum sem
mósaík á útskorna trémynd af sínum jafnaldra í fullri líkamsstærð.
Starfsfólk mun síðan fullklára verkið. Listaverkið verður síðan hengt
upp fyrir ofan matsalinn og sýnt á afmælisdaginn 12. sept. Hér eru
myndir frá deginum.
Heimsókn frá Málmey
Þrír kennarar frá Tingdamsskolan í Málmey í Svíþjóð, Christel, Susanne
og Lotte komu hér í þriggja daga heimsókn. Anna Þóra Jónsdóttir og
Sigrún Ólafsdóttir tóku á móti þeim með vettvangsferð um Suðurland. Þær
voru síðan í skólanum í tvo daga og skoðuðu skólastarfið. Þetta var
mjög ánægjuleg heimsókn en Christel Hammar og Anna Þóra munu verða í
samstarfi í vetur um kennslu í tungumálum og tengja það við sögur um
álfa og huldufólk. Þetta er hluti af enskunámi í 4. bekk því
nemendur munu skrifast á og senda hvorir öðrum bréf á ensku.
Starfsmannafundur kl. 8:30 þann 15. ágúst.
Skólasetning á sal þann 22. ágúst - Foreldrar og aðrir aðstandendur hjartanlega velkomnir.
2-4. bekkur kl. 9:00
5.-7. bekkur kl. 10:00
8.-10. bekkur kl. 11:00
Viðtöl við nemendur og foreldra fyrstu bekkinga verða 22. og 25. ágúst. Bréf verða send heim með pósti og/ eða netpósti. Skólastjóri
Laus störf
Forfallakennari í tilfallandi forföll - Skólastjóri
Starfsfólk Borgaskóla þakkar
nemendum, foreldrum og öðrum aðstandendum þeirra
fyrir veturinn og hlakkar til að hitta ykkur
aftur næsta haust. Gleðilegt sumar.
Hvatningaverðlaun Menntaráðs voru afhent
1. júní. Skólinn fékk afhent málverkið,
Orka, eftir Stellu Sigurgeirsdóttur vegna
frábærrar samvinnu skólanna Kaland skole,
Blåvandshuk skole og Borgaskóla. Nemendur og
starfsmenn unnu saman verkefnið Energy i Norden
og heimsóttu hvern annan. Foreldrum 7. bekkinga
er sérstaklega þakkað fyrir þeirra framlag til
verkefnisins.
Innilega til hamingju Hjördís,
Sóley og Elísabet
Skólaslit
Skólaslit Borgaskóla fóru fram þann 4.
júní. Ánægjulegt var að sjá svo marga
aðstandendur í salnum. Mörg verðlaun voru veitt
og ,m.a. hlaut Steinunn Lind Guðmundsdóttir
verðlaun fyrir hæstu einkunn á samanlögðum
samræmdum prófum. Hljómsveitin Desibel lék tvö
lög og myndasýning frá skóladögum nemenda var
fyrir athöfnina. Skólastjóri
Íþróttadagur
Íþróttadagur unglinganna var haldinn með
miklum keppnisanda. Þar öttu saman hraustustu
drengir og stúlkur árganganna, krafta sína. Það
var 9. bekkur sem bar sigurorð af hinum í
samanlagðri hreysti og liðleika. Tóku þeir
Hjörleifur og Egill á móti viðurkenningarskjali
úr hendi Ríkharðs fyrir hönd árgangsins. Til
hamingju krakkar með góðan dag.
Sjá myndir
hér.
Skólastjóri
Íþróttagleði
Í glampandi sól og góðu veðri
var íþróttadagur 1.-7. bekkjar haldinn í gær.
Allir nemendur og starfsfólk voru á stöðvum sem
nemendur fóru á milli. Margir urðu meistarar
þennan dag, s.s. í limbó, langstökki, húlla eða
körfubolta. 7. bekkur vann keppnina í samanlögðu
en mjótt var á munum milli þeirra og 6. bekkjar.
Þetta var vel skipulagður og ánægjulegur dagur.
Sjá myndir hér.
Skólastjóri
Skólaslit
Útskrift 10. bekkjar og skólaslit hefjast
kl. 18:00 miðvikudaginn 4. júní.
Nemendur eru beðnir um að mæta kl. 17:40.
Einkunnaafhending í 7. bekk hefst kl. 17:00 í
stofu 103 og 104 miðvikudaginn 4. júní.
Fimmtudaginn
5. júní
Einkunnaafhending 1.-3. bekkjar
hefst kl. 9:00 í salnum.
Einkunnaafhending 4.-6. bekkjar hefst kl. 10:00
í salnum.
Einkunnaafhending 8.-9. bekkjar hefst kl. 11:00
í salnum.
Foreldrar og aðrir aðstandendur eru boðnir
velkomnir.
Skólastjóri
Stærðfræðisnillingar
Samræmdu prófin komu á föstudaginn og þá
kom í ljós að sjö nemendur í 9. bekk höfðu
fengið einkunnina 10,0 í stærðfræði og þrír
fengu yfir 9,0 Þetta er frábær árangur hjá
nemendum og kennurum skólans.
Hjartanlega til hamingju.
Góð fyrirmynd
Agnes Guðlaugsdóttir 5VB hlaut
nemendaverðlaun Menntaráðs í gær 1. júní. Agnes
fékk þau fyrir góða samskiptahæfni, námsárangur
og forystu í bekkjarstarfi. Agnes er vel að
verðlaununum komin enda góð fyrirmynd í
skólastarfinu.
Hjartanlega til hamingju.
Hátíðarstemmning
Vorhátiðin var haldin í góðu veðri á laugardaginn. Það var hátíðarstemmning og átti 9. bekkur drjúgan þátt í því með ,,Candy floss", andlitsmálningu og pylsusölu. Þau stóðu sig sérlega vel og stóð Bjarki Birgisson í ströngu með allan sykurinn. Karókíið var á sínum stað og alltaf jafn vinsælt, hoppukastalar og nýjar hjólaþotur reyndust mjög vinsælar.
Foreldrafélaginu eru færðar þakkir fyrir alla vinnuna og skipulag.
Taka 2008
Kvikmyndahátíð grunnskóla í Reykjavík fór
fram í gær í Kringlubíói. Freydís og Júlía,
nemendur í 9. bekk Borgaskóla fengu verðlaun
fyrir bestu fræðslumyndina. Um er að ræða
stórskemmtilegan matreiðsluþátt sem hægt er að
skoða hér fyrir neðan.
Til hamingju stelpur.
Vorhátíð-
sýning á verkefnum
Vorhátíð skólans verður haldin
laugardaginn 24. maí kl. 11:00-14:00. Þar
verður margt til skemmtunar, leiktæki, söluborð,
karókí, pylsusala sem markar upphaf söfnunar 9.
bekkinga í ferðsjóð sinn og fleira. Einnig
eru að venju sett fram til sýnis verkefni
nemenda í stofum. Sjáumst öll og eigum
góða stund saman.
Skólastjóri
Vorpróf Vorpróf og námsmat
verður í skólanum dagana 26.-29. maí.
Starfsdagur verður 30. maí. Þann dag er
opið í Hvergilandi frá kl. 8:00-17:15. Sjá
nánar próftöflur á bekkjarsíðum.
Skólastjóri
Gleði og gaman Norsku og dönsku
nemendurnir, kennarar og foreldrar komu á
mánudaginn til skólans. Þar tóku foreldrar
7. bekkinga á móti þeim með matarveislu.
Og þeir létu ekki staðar numið því daginn eftir
sáu þeir líka um veitingar fyrir þau. Við
getum ekki nógsamlega þakkað fyrir þennan mikla
góðvilja og náið samstarf.
Dagarnir hafa liðið hratt og mjög góður andi í
hópnum. Engin spurning er í huga
kennaranna og foreldranna að þetta verkefni
hafi dýpkað þekkingu nemenda og aukið reynslu
þeirra þannig að þeir muni búa að alla ævi.
Hópurinn fer heim á föstudag og má búast við
söknuði en þau geta haldið áfram að hafa samband
með tölvupósti og á MSN.
Sjá myndir hér.
Skólastjóri
Energy I
Norden Í næstu viku munu
norrænir vinir 7. bekkinga frá Kalandskole og
Blåvandshuk skole koma í viku heimsókn.
Þetta er lokaheimsóknin og lokin á verkefninu
Orka í Norðri. Umsjónarkennarar og
nemendur hafa skipulagt metnaðarfulla dagskrá
með dyggri aðstoð foreldra. Orkuveitan
býður m.a. öllum hópnum sem telur um 110 manns í
heimsókn að Gvendarbrunnum og í
Hellisheiðarvirkjun og skiplagða dagskrá þar.
Slíkt samstarf er ánægjulegt og gefandi fyrir
báða aðila. Það verða saknaðarstundir í
lok vikunnar en margir nemenda hafa tengst góðum
vinaböndum með hjálp MSN og tölvuskeyta.
Sjá nánar á bekkjarsíðu 7. bekkjar
Skólastjóri
Lokaferð 10.
bekkjar og samræmd próf Nú er samræmdum prófum
lokið og 10. bekkingar hafa farið í lokaferðalag
sitt. Foreldrar þeirra höfðu skipulagt
hátíð fyrir þau fimmtudag og föstudag með
glæsilegum kvöldverði, útivist og ýmsu
spennandi. Gleði og gaman einkenndi
ferðina sem var jákvæð og uppbyggilegMeð
nemendum fóru Magnús Guðmundsson,
félagsmiðstöðinni Borgyn og Eygerður
Guðbrandsdóttir, umsjónarkennari þeirra og voru
allir sammála um að foreldrar hefðu skipulagt
flottustu lokaferðina.
Skólaslit verða svo hjá 10. bekkingum 4. júní
kl. 18:00 en fram að því munu þau vinna
glæapasöguþema í íslensku og ensku og fá
rithöfund í heimsókn.
Skólastjóri
Vorskólinn
Gleði og eftirvænting skein úr hverju andliti
þegar börnin sem eru væntanleg í 1.bekk í haust
komu í Vorskólann. Börnin fóru í litla
kennslustund og sprell í íþróttasalnum á meðan
foreldrar fengu fræðslu um skólann og starfsemi
hans hjá skólastjórnendum.
Takk fyrir komuna börn og
foreldrar, Borgaskóli hlakkar til að taka á móti
þessum fallega hópi í haust.
Íslandsmeistarar 2008
Helga Malen og Marólína
Fanney, sem er í 5. VB, urðu Íslandsmeistarar í
grunnsporum, unglingar I B/D latin á
Íslandsmeistaramótinu í dansi þann 3. maí.
Til hamingju stelpur.
Skólastjóri
Miðlun í
Borgaskóla
Nemendur í margmiðlunarvali í hafa verið
að læra á Flash á þessari önn og gert mörg
skemmtileg verkefni, þar á meðal einn tölvuleik.
Hér má sjá þau verkefni sem eru tilbúin.
Nemendur í fjölmiðlunarvali
hafa verið að vinna að margskonar verkefnum sem
hægt er að skoða á bloggsíðunni þeirra. Slóðinn
er:
http://borgaskoli.blog.is
Stærðfræðisnillingar
Stærðfræðihópur 2 sem í er blanda
af nemendum úr 9. og 10. bekk tóku þátt í
þrautasamkeppni Flatar sem eru samtök
stærðfræðikennara. Þau voru síðan dregin út úr
hópi þeirra sem voru með rétt svör og fengu sem
viðurkenningu Alfræðispilið frábæra.
Þrautin sem þau réðu:
Hvaða jákvæða heiltala N uppfyllir eftirfarandi
5 skilyrði:
1. N er slétt.
2. Þegar deilt er í N með 5 fæst afgangurinn 1.
3. N er margfeldi af 7.
4. N er minni en 1000.
5. Summa tölustafa N (þegar N er skrifað miðað
við venjulegt tugakerfi) er 23. Berghildur
Mötuneytisreikningar
Þau leiðu mistök urðu að greiðsluseðlar fyrir
mötuneytisáskrift í maí
og júní sem stofnaðir voru þann 23.04
síðastliðinn voru merktir með
gjalddaga 05.02. í stað 05.05. Búið er að fella
þá niður og afturkalla
því þeir fóru sjálfkrafa beint í innheimtu. Nýir
seðlar verða sendir í
vikunni. Haft verður samband við þá sem búnir
voru að greiða varðandi
endurgreiðslu kostnaðar.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Skrifstofustjóri
Foreldrafundur Fundur með foreldrum
9. bekking er mánudaginn 28. apríl kl 19:30.
Skólastjóri
Gleðilegt
sumar
Í dag fengu börnin í 2.bekk
íslenska fánann að gjöf. Tilefnið er að á hverju
ári gefur skátahreyfingin öllum börnum í 2.bekk
fánaveifu. Skátahreyfingin vill hvetja börnin
til að geyma fánann og nota við hátíðleg
tækifæri.
Borgaskóli óskar börnum og
fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars með þökk
fyrir veturinn
Pizzuveisla á föstudegi
Nemendum Borgaskóla var boðið
upp á pizzu í hádeginu á föstudaginn. Tilefnið
var góð útkoma í Olweus. Eins og sjá má
á myndunum runnu pizzurnar ljúflega niður.
Góð niðurstaða úr Olweusarkönnun
Starfsfólk Borgaskóla eru nú á
lokasprettinum í innleiðingu á
Olweusaráætlun gegn einelti og
andfélagslegri hegðun. Í vetur var lögð
könnun fyrir alla nemendur í 4. – 10. bekk
sem mælir einelti. Þar er m.a. könnuð
afstaða nemenda til eineltis, hvernig
umhverfið bregst við, viðbrögð nemenda við
einelti og líðan í skólanum. Það er
gleðilegt frá að segja að nemendur
Borgaskóla koma vel út í þessari könnun. 97%
nemenda Borgaskóla hafa ekki orðið fyrir
einelti. Starfsfólk skólans mun starfa áfram
eftir Olweusráætluinni með það að
leiðarljósi að gera gott skólastarf enn
betra.
Vinnuskóli Reykjavíkur - Störf í sumar
Hlutverk Vinnuskóla Reykjavíkur er að skapa
ungmennum í Reykjavík öruggt, hvetjandi og
þroskandi atvinnuumhverfi yfir sumartímann og
bæta líðan nemenda í Atvinnutengdu námi yfir
vetrartímann. Vinnuskóli Reykjavíkur er
einstakur útiskóli og einn stærsti vinnustaður
landsins yfir sumarmánuðina. Lesa meira:
auglys_nem_08.pdf
Stefna Reykjavíkur í menntamálum 2008
Menntaráð hefur mótað stefnu Reykjavíkur í
skólamálum á næstu árum. Þar birtist stefnuskrá
og yfirmarkmið Grunnskóla í Reykjavík sem eru í
fararbroddi í skólastarfi sem einkennist af
fjölbreytni, gæðum og fagmennsku. Þeir njóta
sjálfstæðis og sveigjanleika til að móta sína
sérstöðu, áherslur og markmið. Lesa meira:
Stefna_MSR_2008.pdf
Kokkakeppni Borgaskóla
Kokkakeppni Borgaskóla var haldin með glæsibrag.
Fjögur lið voru skráð til keppni og voru
frábærir vinningar í boði. Liðin lögðu sig
öll fram og var listilega lagt á borð og matur
afar bragðgóður. Mjög mjótt var á munum í
úrslitum en í fyrsta sæti voru Sæunn Sif
Heiðarsdóttir og Valgerður Tryggvadóttir, í öðru
sæti voru Kristinn Páll Sigurbjörnsson og S.
Óskar Nielsson. Sæunn og Valgerður fara
því í lokakeppnina sem verður í MK. Öll
skipulagning og umgjörð keppninnar var í höndum
Arnheiðar Jónsdóttur, heimilisfræðikennara og
Sigurlaugar Hauksdóttur.
Kokkakeppni
Borgaskóla verður haldin miðvikudaginn 2. apríl
kl. 14:00 í heimilisfræðistofunni. Keppnin fer
þannig fram að hvert lið þarf að elda aðalrétt
á innan við 60 mínútum. Liðin eru skipuð 2-4
nemendum úr 9 eða 10 bekk. Hráefnið í réttinn má
ekki fara yfir 1000 kr. Metið verður bæði fyrir
útlit og bragð.
Dómarar í kepninni verða Úlfar
Eysteinsson matreiðslumeistari á Þrír
frakkar-hjá Úlfari, yfirdómari; Örn Baldursson
kokkur í Borgaskóla; Ragnar Ingvarsson læknir og
áhugamaður um matreiðslu,
www.ragnarfreyr.blog.is; Stefanía
Stefánsdóttir lektor við KHI, Lilja M.
Jónsdóttir lektor við KHI og Svava M.
Ingvarsdóttir deildarstjóri unglingastigs í
Borgaskóla.
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir
1.-3. sæti auk þess sem allir fá viðurkenningu.
Styrktaraðilar okkar eru Þrír frakkar-hjá Úlfari
www.3frakkar.com og Hagkaup
www.hagkaup.is.
Fimm lið taka þátt innan
Borgaskóla og mun sigurliðið keppa fyrir hönd
skólans í landskeppninni sem fram fer í MK
laugardaginn 12. apríl. Hægt er að lesa meira um
það á
www.kokkakeppni.is
Íslandsmeistaramótið í Taekwondo
fór fram 15. apríl í Íþróttamiðstöðinni við
Dalhús. Mótið er tvískipt, sparring (bardagi)
og poomsae (form). Keppnin nú var í sparring og
í haust verður keppt í poomsae. Iðunn í 9.HN
varð Íslandsmeistari í sínum flokki og er þetta
hennar fimmti Íslandsmeistaratitill. Fleiri
krakkar úr Borgaskóla eru mjög framarlega í
greininni en það eru Pétur Rafn í 8. bekk og
Birna Rós í 7. bekk. Þau hafa bæði unnið
til verðlauna á mótum hér heima og erlendis. Við
óskum Iðunni, Pétri og Birnu til hamingju!
Flottir Olympíustærðfræðingar
Þann 29. mars kl.
14:00 í stofu 131 í Háskólanum í Reykjavík verða veitt verðlaun þeim
nemendum sem skarað hafa fram úr í Olympíustærðfræðinni í vetur. Það eru 6
nemendur í Borgaskóla sem hafa unnið fyrir
þessum heiðri. Úr 7. bekk Brynja
Pálína Sigurgeirsdóttir, Dagný Björk
Jóhannesdóttir, úr 6. bekk Ari Brynjarsson,
Matthías Guðmundsson, Þórir Þórðarson og úr 5.
bekk Edda Anika Einarsdóttir. Til hamingju
krakkar með árangurinn.