|
Foreldraráð
Foreldraráð er
lögbundið ráð og er því ætlað að fjalla um og gefa umsögn til
viðkomandi grunnskóla og skólanefndar um
skólanámskrá/starfsáætlun og aðrar áætlanir tengdar
skólahaldinu. Í Reykjavík gegnir menntaráð hlutverki
skólanefndar. Foreldraráð á að fylgjast með framkvæmd áætlananna
og að þær séu kynntar fyrir foreldrum.
Foreldraráðum
er ætlað að auka áhrif foreldra á skólastarfið. Þau mynda
formlegan vettvang foreldra til að koma sjónarmiðum varðandi
innihald, áherslur og skipulag skólahalds á framfæri við
stjórnendur skólans.
Foreldraráð ber
að kjósa á fundi foreldra að vori. Skólastjóri boðar til fundar
þar sem lögð eru drög að starfsáætlun ráðsins.
Það sem
einkennir samskipti öflugs foreldraráðs og skólastjórnenda eru
opin og jákvæð samskipti, góður samtarfsandi, uppbyggileg og
málefnaleg gagnrýni og hvatning.
Til að
foreldraráð geti sinnt hlutverki sínu er mikilvægt að það sé í
nánu samstarfi við stjórn foreldrafélags viðkomandi skóla og
aðra foreldra. Foreldraráðið þarf að geta miðlað upplýsingum um
starfið og vera móttækilegt fyrir ábeningum frá öðrum foreldrum.
Fréttabréf skóla og/eða foreldrafélaga eru mikilvæg í þessu
sambandi en ekki síður heimasíður skóla. Hægt er að fara margar
leiðir til að styrkja tengsl foreldraráðs við foreldrahópinn.
Nauðsynslegt er
að foreldraráð, stjórn foreldrafélags og bekkjarfulltrúar
hittist nokkrum sinnum á ári til að skiptast á skoðunum og miðla
upplýsingum.
(Tekið úr bækling útgefnum af
Menntasviði og SAMFOK,2006)
Foreldraráð Borgaskóla kemur saman síðasta
fimmtudag í mánuði og fundar með skólastjóra 1. þriðjudag í
mánuði. |