Borgaskóli
 
Ábyrgð - Ánægja - Árangur

 

 

Aðalsíða

Um skólann

Skóladagatal

Mikilvægar dagsetningar

Vefpóstur


  Fréttir
  Skýrslur
  Námsáætlanir
  Foreldraráð
  Foreldrafélag
  Heilsugæsla
  Þróunarverkefni
  Skólasamfélagið
  Námsráðgjöf
  Bókasafnið
  Mötuneyti
  Myndir
  Störf í boði
  Starfsfólk
  Bekkjasíður
  Krækjur


Foreldrafélög

Foreldrafélög eru frjáls félagasamtök/samtök foreldra sem hafa það hlutverk að styðja við skólastarfið og efla tengsl foreldra, bæði innbyrðis og við skólann.  Hlutverk samtakanna er jafnframt að skapa vettvang fyrir samstarf og samstöðu meðal foreldra.  Góð samskipti foreldra auðvelda samráð og samstöðu í uppeldinu. 

  • Stjórn foreldrafélagsins er kosin á aðalfundi sem æskilegast er að haldinn sé að vori.
  • Stjórnin mótar stefnu og áherslur í starfi í samráði við skólastjórnendur, bekkjarfulltrúa og nemendaráð.
  • Markmið starfsins er að stuðla að vellíðan nemenda og bættum námsárangri með því að auka samskipti foreldra og styrkja skólabraginn.
  • Stjórnin sér til þess að verkefnum sé skipt milli foreldra þannig að sem flestir taki þátt í undirbúningi og framkvæmd a.m.k. eins verkefnis yfir veturinn.

Einn mikilvægasti hluti starfs foreldrafélagins er uppbygging bekkjarstarfsins en það er einn besti samráðs- og samstarfsvettvangur foreldra í uppeldinu.  Í þessu starfi gegna bekkjarfulltrúar afar mikilvægu hlutverki.  Markmið starfsins er að stuðla að samstarfi og samskiptum nemenda, foreldra, kennara og annarra starfsmanna skóla. 

  • Æskilegt er að bekkjarfulltrúar, kosnir af foreldrum, séu tveir í hverjum bekk/hópi.
  • Þeir gegna hlutverki verkstjóra sem hafa jákvæða hvatningu að leiðarljósi.
  • Þeir halda utan um dagskrá sem er ákveðin í sameiginlegum fundi foreldra í bekknum að undangenginni athugun á viðhorfum og  óskum barnanna.
  • Bekkjarfulltrúar eru jafnframt tengiliðir bekkjarins við foreldrafélög og foreldraráð skóla.
 
 

Borgaskóli    Vættaborgir 9    112 Reykjavík    Sími: 577-2900    Bréfsími: 577-2902
Netfang: borgask@borgaskoli.is
   Veffang: www.borgaskoli.is